Bliiiii Ási cooper hér
[ Now playing: Basshunter - Boten
Anna ] <-
bezt
Jæja þá eru kapparnir í 3fl HK mættir
í klakann eftir sweitta Svíþjóðarferð þar sem margt og mikið
skeði! 
Byrjum á byrjuninni, áttum að mæta kl
04.00 í fagralund og taka rútu allur hópurinn ( fyrir utan Hólm4r,
44|20|/| og Kolla )
Jæja þá allavega fórum við og flugum
til svíþjóðar og lentum í Gautaborg, þar sem sæææææææænskar
gelluuuuuur ráða ! Vááá sko.. :x
Tókum rútu
að skólanum sem við gistum í, fínasta place .. Gistum meðal annars
með ÍBV og einhverjum útlenskum liðum...fínt það já
Man reyndar
ekki hvað gerðist svo.. ætli við höfum ekki komið okkur fyrir...
svo bara slappað af og borðað svo farið að sofa, enda þurftum við
að vakna klukkan 07.00 til að fara að keppa...
Okkur gekk
vel í byrjun unnum fyrstu 2 leikina
Töpuðum svo
á móti nasistahelvítunum frá Þýskalandi Angeln og einhverju öðru
noname liði
hehe, fínt
fólk, ekkert illa meint með "nasistahelvítin" bara svona til að
krydda 
Já svo
gleymdi ég líka uppáhaldinu mínu, tívolíið, vá sko ég eeeelska
þessi helv.. tívolí <3<3<3
Flestir
kjeddlarnir voru harðir og fóru í öll tækin, ekki allir samt..
nefni engin nöfn heeeEEEx
Við komumst
í A úrslit ( 64 - 128 sæti ) sem er tjahhhh fínt m.v svona 400 lið
( ágiskun )
Allt í allt
voru 1500 lið þarna en ekki öll kk 3fl Eldra ári.. flest
samt,
annars voru
um það bil 30 þúsund þáttakendur, sem er já, svakalegt

Svo fóru
kallarnir á eitthvað svakalegt diskótek, algjör snilld

Hehe svo má
ekki gleym þegar Ég, Hólmar, Jonni og Gunnar Þórir eyddum einum
degi þarna saman, ég hef aldrei á ævinni hlegið jafnmikið!
hahaha
það byrjaði
svoleiðis að það sátu 2 ágætlega útlítandi stelpur við hliðinni á
hólmari, hann sagði að þær væru pottþét sænskar, og ég sagði "neii
þær eru enskar" "nei" sagði hólmar, þá svaraði ég "jú" , "Veðja?"
spyr hólmar, já segi ég 10 sænskar kr ( c.a 100 krónur )
Svo spyr
hann þær "Where are you from?"
"Sweden"
svöruðu þær ( helv skandall ) :Þ
þá ætlaði ég
að leka útúr mér mínum gullfallega hreim og ætlaði að segja "Were
you born in sweden "
Enn þetta
kom einhvernveginn svona út " Where you burn in sweden?
"
Þær auðvitað
skildu ekkert í mér og hlógu bara og án þess að svara, héldu þær
áfram að tala saman sín á millli
Ég líklega
roðnaði, man það ekki 
Svo ákváðum
við einhvernveginn í sameiningu að ég ætti að gera mig að fífli
fyrir framan þær og Hólmar ætti að segja við þær að ég væri
"eftirá"
Eitthvað
mishugsaði ég og samþykkti það for svo að gera mig að fífli,
byrjaði á að standa upp og snúa mér hratt í 2-3 hringi og setjast
niður og gretta mig ... Svo gerðum ég og Hólmar deal um að ég
þyrfti ekki að borga honum ef ég spyrði þær hvort þær væru
"hreinar"
Ég hugsaði
mig aðeins um og ákvað að svindla aðeins á honum og samþykkti
þetta,
Svo sagði ég
"Hey" til að fá athyglina hjá þeim, þær litu á mig og biðu eftir
commenti, þá sagði ég eftir smástund "Are you
clean?"
"Hahahaha,
what??"
"A-R-E Y-O-U
C-L-E-A-N?"
"hahaha"
EKKERT SVAR.. AFTUR??
Jæja það fer
aðeins í mig, læt samt sem ekkert hafi skéð, svo sé ég þarna Blátt,
blautt, sveitt og ógeðslegt handklæði... eftir einhvern feitan
svía
ég ákveð að
taka það og henda í grímuna á Hólmari , ég geri það og á sömu
millisekúndu fæ ég það aftur beint á mig þá segi ég "Hvað fæ ég
fyrir að henda í þær?" sem þá var ekki nokkur möguleiki að ég myndi
gera, aldrei!
Þá byrja
þeir að hvetja mig "haha gerðu það"
"come on
ekki vera kelling "
"GERÐU ÞAÐ!!"
Eftir smástund þá ákveð ég ( af
einhverjum óskiiljanlegum ástæðum ákveð ég að gera það..
!)
Ég tók það
og henti því án þess að hugsa mig einu sinni um, og sekúndurnar sem
það var í loftinu voru svooo langar, ég sá Sólheimaglottið á Gunna
á meðan og um leið og handklæðið var hálfnað, snéri ég mér við og
pissaði í mig úr hlátri
Sama gerðu
Hólmar Jonni og Gunnar, það heyrðist samt ekki múkk í okkur, við
hlógum of mikið og of "hátt" og of lengi þannig að það heyrðist
ekkert í okkur, hahahahahaha :'D
"Eww, wtf r
u doing maan" og hentu handklæðinu á gólfið eða eitthvað, enginn af
okkur datt í hug að líta á þær, við bara grétum úr hlátri í nokkrar
mínútur.. laglegur sixpack kominn á okkur eftir það ;D
Svo á leiðinni út
pissuðum við á allt gólfið úr hlátri og hólmar sagði eitt og eitt
orð á milli " He --hló- is -hló- slow " og velti sér útúr strætónum
úr hlátri svo röltuðum við upp í skóla enn þá að kafna úr
hlátri...
Jæja þá
ákváðum við að fara að gera okkur að fíflum, fyrst þetta var
síðasta kveldið og enginn ætti eftir að muna eftir okkur .. Ætluðum
samt að slappa aðeins af fyrst.. jæja já hólmar skoraði á mig í
blakfótbolta dúel ( inn í skólanum ), ég auðvitað samþykkti
það
Ég vann
fyrsta leikinn 10-9
Hann vann
annan leikinn 10-7
Svo var kominn geðveikt blóð í
leikinn og báðir kófsveittir og ákváðum að taka einn
úrslitaleik..drulllluuusveittir.. en já okei,
Við spilum þarna í smástund, svo
skoraði ég eitthvað mark sem Hólmar var ekki sáttur við, jæja þá
hann neglir boltanum bak við mig drullufast, ég ætla að vera svalur
og taka á móti honum með hælnum eða eitthvað þannig,
neiiii
ég dúndra
boltanum svo fast upp í loftið að ég hélt að skólinn myndi hrynja,
sem betur fer gerðist það ekki, samt datt riiiisastór biti úr
loftinu, ábyggilega svona 2 metrar á lengd og svona hálfur á
þykkt.
Gunni sem
var þarna nokkuð fyrir aftan okkur var fyrstur til að spretta beint
inn í herbergi og henda sér á dýnuna sína og láta sem hann væri
sofandi, þar var jonni nú þegar að æfa sig í að "djöggla" eins og
hann kallar það svo komum við hólmar hlaupandi fyrir aftan alveg að
deyja úr spenningi eða einhverju svipuðu...
Jæja okei
við fórum og tókum strætó á McDonalds sem var frekar vinsæll staður
hjá strákunum, þar ákváðum við að taka risastórt flipp, Hólmar
þóttist vera djúpraddaðasti maður í heimi og talaði eins og mesti
fáviti sem ég hafði nokkurntímann hitt, ég ætlaði að panta á
íslensku, gunni ætlaði að panta "Whopper" og fyrir ykkur sem eru
ekki með gráðu í skyndibitafæðum, fæst það einungis á Burger King,
og jonni snilli ætlaði að þykjast vera blindur..
Jæja þetta byrjaði vel hjá hólmari (
hann stóð við hliðina á mér og ég var að panta hjá einhverri
annarri gellu.. )
"Já blessuð, ég ætla að fá hjá þér
hérna stórann súkkulaði sjeik, ostborgara og franskar "
"what" segir hún og
flissar..
ég endurtók þetta og hún leit
efasömdum augum á starfsfélaga sinn sem var að afgreiða
hólmar,
auðvitað gat ég ekki haldið inni í
mér hlátrinum og dó úr hlátri, bara útaf því að hólmar talaði
svoooooo asnalega hahahaha
Pantaði svo bara á ensku og við átum
þetta með mikilli lyst, hver með sitt uppáhald,
svo voru 4 gelgju gellur fyrir framan
okkur, jonni ákvað að fara að sækja rör og af einhverjum ástæðum
ákvað aulinn að DANSA á leiðinni til baka, fyrir framan 4
stelpurnar, þær grétu auðvitað úr hlátri eins og ég
neinei svo fer hólmar að sækja rör
líka og endurtók það!
Snéri sér í hring og lét eins og
Fáviti 
Jæja þá setti jonni á sig
riiisamjólkurskegg og fór að atast í einhverri gellu sem var það
fyndnasta sem ég hef séð ( fyrir utan handklæðið ;D )
Settist óendanlega nálægt henni (
óvart hahhaha ) og spurði að einhverju sem ég man ekki.. :þ
hehehehe með þetta ógeðslega stóra mjólkurskegg
Svo kom aulinn til okkar aftur hahah,
svo stungum við upp á að hann færi og skammaði hana fyrir að láta
hann ekki vita að hann væri með eitthvað í andlitinu..
bjuggumst ekkert við því að jonni
myndi gera það, NEIII
HANN SNÝR VIÐ, LABBAR AÐ HENNI OG
SKAMMAR HANA!!! hahhahahahahha
Svo tókum við strætó #17 back to
school, þar sem ég og hólmar vorum í hressari kantinum og fórum að
spjalla við einhverja emo stelpu, sem var svo eiginlega ekkert emo
en jæja,
enn og aftur kom minn FALLEGI
hreimur, hún skildi EKKERT af því sem ég sagði, ég endurtók það
alltaf 2-3x og hún skildi mig ekki, svo hólmar sagði það alltaf
fyrir mig og hún skildi það... ? fífl 
Jæja ég ákvað að spurja hana hvað hún
héldi að það ættu margir heima í höfuðborginni á Íslandi
Hún þorði ekki að giska og flissaði
og flissaði, eftir smá tiltal sagði hún
"okeyyy.... thousand? "
ég auðvitað sármóðgaður útí hana og
fussumsveia
svo eru sænskar svooooooooo
óóóóóógeðslega flottar maður !!! VÁÁÁÁÁ!!

heh jæja ég er að deyja i puttunum,
ég set annað blogg seinna þegar ég nenni, ég er að fara til ítalíu
eftir 3 daga í 2 vikur, fyrir eða eftir hana kemur annað svipað
blogg.. þetta hlýtur nú að vera ágætlega langt,
Vonandi nenntuð þið að lesa
þetta rugl í mér!! 
Og já Íslenskar eru samt 100000x
flottari! :*
<3<3
Bæjó